Mig langar að fjalla aðeins um grein sem varðar höfundarrétt, sem ég las af vefnum is.wikibooks.org. Þessi grein er skrifuð af Salvöru Gissurardóttur og fjallar um höfundarrétt og internetið, hún fjallar aðallega um það hvernig kennarar geti nýtt sér efni af netinu til kennslu og þá hvernig þekkja má hvaða efni er verndað höfundarrétti og hvað er frjálst að nota án t.d. borgunar. Það eru gefin dæmi um hin ýmsu tákn sem tengjast höfundarrétti og útskýrir hún vel hvað hvert þeirra þýðir. Ég verð að segja að ég hef hingað til lítið leitt hugan að þessu efni og maður getur rétt ímynað sér að margir misnoti sér efni af netinu kanski oft án þess að gera sér grein fyrir því, sérstaklega þegar verið er að nota myndir og ljósmyndir. En eins og fram kemur í greininni er fullt til af efni sem ekki þarf að greiða fyrir og um að gera að nýta sér það. Að mínu mati mætti fjalla meira um þetta og upplýsa fólk betur um höfundarrétt og notkun á efni af internetinu.
Takk fyrir mig, Ásdís
Slóðin á greinina er eftirfarandi:
http://is.wikibooks.org/wiki/H%C3%B6fundarr%C3%A9ttur_og_Interneti%C3%B0
Thursday, November 25, 2010
Sunday, November 7, 2010
Þankar um skype
Þar sem ég sit hér og les greinar tendar námsefni komst dóttir mín í tölvuna. Ekki frásögu færandi nema hvað hún er að leika sér við vinkonu sína sem býr í Tékklandi á Skype. Mér finnst þetta vera atriði sem vert er að gefa gaum. Þannig er að við fjölskyldan bjuggum erlendis í mörg ár og krakkarnir mínir hafa verið að hafa samband við vini sína í gegnum Skype. Þessi yngsta, 8 ára, leikur sér núna við vinkonur á Skype. Þær taka til dót, núna er það pet shop, litlar dýrafígúrur, sem þær raða upp og leika svo fyrir framan tölvuskjáinn. Sem betur fer er þetta svo til frítt því þær eyða klukkutímum leikandi sér á þennan máta. Skype er frábært tæki til að vera í sambandi við vini og kunningja enn þegar það er komið út í þetta þá veit ég ekki alveg hvað ég á að halda? Er þetta hluti af framtíðinni hjá börnum að sitja heima fyrir framan skjáinn og leika! Ég er allavega ekki að letja hana í að stunda þetta því auðvitað heldur hún sambandi við vini og æfir sig í enskunni sem annars væri lítið notuð eins og er. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki verið eins dugleg að nota þessa tækni, en er að reyna að venjast því að blogga, gera heimasíðu og þess háttar, tekur smá tíma fyrir fólk sem ekki er vant að tjá sig mikið að finna sig á þessum vetvangi.
Kveðjur í bili
Ásdís
Kveðjur í bili
Ásdís
Sunday, October 31, 2010
Umfjöllun um grein
Eitt af verkefnunum okkar er að fjalla um grein tengda náminu, og ætla ég að gera það hér. Greinin sem varð fyrir valinu er af leslistanum og fjallar um notkunarpróf á vefsíðum bókasafna. Grunnlínan í greininni er að bókasöfn eigi að vera fyrirmynd í því að notkunaprófa vefsíður sínar með þá þekkingu sem starfsfólið býr yfir og halda úti notendavænum vefsíðum. Markmið með prófun er að ákvarða nokkur atriði eins og virkni; nær notandinn í þær upplýsingar sem hann sækist eftir, skilvirkni; hversu mikið þarf hann að hafa fyrir því og ánægja; er notandinn ánægður með upplýsingarna og er jákvætt viðhorf gagnvart reynslunni. Aðferðir prófunar er skipt í tvær megin aðferðir þ.e.a.s. það að hönnuðir vefsíða meti notkun og að notendur skili sínu áliti um notkun á vefsíðum. Það eru ýmis próf á markaðum núna sem auðveld notkunarkannanir og hefur þeim fjölgað á seinni árum. Þar sem flestöll bókasöfn halda úti vefsíðum ættu reglulegar kannanir á notkun að vera gerðar að mati greinahöfundar, og endurbætur á vefsíðum gerðar í sambandi við það til að skila ánægðum notendum vefs bókasafnsins. Hann telur að próf á notkun ætti að hefja strax við upphaf hönnunar á vefsíðu og gera reglulega þannig að til verði vefsíður sem eru notendavænar fyrir alla.
Þessi grein staðfesti það hversu hröð þróun er á allri netnotkun, að bókasöfn verði að fylgjast vel með notendahóp sínum og kröfum sem þeir gera, upplýsingar um það fást með gerð notkunarprófa sem þarf að gera reglulega. Mér fannst þessi grein ágæt, hún fékk mig aðeins til að hugsa um þessi atriði að það þarf að hafa vakandi augu fyrir kröfum notendanna að þeir koma bara ekki aftur á vefsíðuna ef hún er ekki notendavæn.
Genuis, S. K. (2004). Web site usability testing: A critical tool for libraries. Feliciter, 50(4), 161-164. Sótt 30. október 2010, í EbscoHost gagnagrunninn

Sunday, October 17, 2010
Heimsókn á bókasafn
Föstudaginn 15. október var farið í aðra vísindaferð nema í Bókasafns- og upplýsingafræðum, í þetta skipti var farið í heimsókn á bókasafn Seltjarnarness. Verð að viðurkenna að það var ekki auðvelt að drífa sig af stað á föstudegi í hellidembu kl. 17 frá Hafnarfirði út á Seltjarnarnes. En mikið er ég fegin að hafa skellt mér með. Það var mættur dágóður hópur nema út á Eiðstorg, verð að viðurkenna að það var að vísu ekki auðvelt að finna safnið í byggingunni, og var þetta það eina sem setja mætti út á þetta frábæra safn þ.e.a.s. aðgengi og merkingar.
Pálína Magnúsdóttir, forstöðukona safnsins, tók frábærlega á móti okkur og lóðsaði okkur um safnið og sagði okkur frá sögu þess og hvernig hún og aðrir starfsmenn tóku virkan þátt í hönnun þess þegar safnið flutti í þetta húsnæði fyrir nokkrum árum. Mestallur bókakosturinn er í færnalegum hillum þannig að það er hægt að breyta ríminu á marga vegu eftir henntugleika. Þegar við mættum um fimmleytið var verið að loka en safnið fullt af fólki svo það er líf og fjör þarna. Það er frábær aðstaða til að slappa af og lesa bækur og blöð í stóru rúmgóðu rími og við hliðin á því er mjög gott barnarími með dínu og góðri aðstöðu fyrir börn. Pálína talaði aðeins um það hvað menningarviðburðir eru að flytjast inná safnið, haldnir eru tónleikar og fyrirlestrar og ýmisleg fleiri menningartengd starfsemi á safninu og hún tók fram að þetta væri sennilega þróun bókasafnsins að sum menningartengd starfsemi bæjarfélagsins færðist hægt yfir til bókasafnsins. Boðið var upp á veitingar í hliðarsal sem var fallega skreyttur með listaverkum eins stafsmanns sem hafði notað gamlar bækur og búið til ýmisleg skemmtileg listaverk. Ég var allavega heilluð af þessu safni, það er hátt til lofts og góð opin aðstaða til að vafra um og kíkja í hillurnar, þessar færanlegu bókahillur eru líka notaðar til að mynda minni rími sem í eru stólar og borð til að tilla sér í og glugga í bók. Sem sagt glæsilegt safn sem ég á vonandi eftir að heimsækja fljótt aftur. Kveðjur Ásdís

Thursday, September 30, 2010
Hitt og þetta
Síðasti séns að skila inn færslu fyrir mánaðarlok. Það er allt á síðustu stundu hjá mér þessa dagana. Stend í flutningum um þessi mánaðarmót, fékk afhent nýtt húsnæði fyrir viku og þurfti að nota þessa viku til að mála og gera lítisháttar breytingar. Og er nú á fullu að pakka því á morgun er stóri dagurinn. Þetta rask hefur náttúruleg bitnað aðeins á háskólalífinu mín sem ég hef stundað með hálfum hug þessa viku. Er að reyna að detta ekki mikið afturúr í lestri. Ég verð samt að viðurkenna að ég var ansi óánægð með sjálfa mig og síðasta verkefni, þ.e.a.s. verkefnið um leitarvélarnar, enn reyni að gera betur næst. Annars var þetta mjög lærdómsríkt verkefni maður var að uppgötva alveg nýja hluti, allar þessar leitarvélar vá! Hingað til hef ég einungis notað google og það dugað ágætlega enn hér eftir verður maður gagnrýnni á leitarniðurstöður og leitar betur og á fleiri stöðum. Næsta verkefni gátlistar lítur ok út enn ég er aðeins farin að kvíða þessari heimasíðu ætti að fara að velta því aðeins fyrir mér.
Góða helgi
Ásdís
Góða helgi
Ásdís
Saturday, September 25, 2010
Vísindaferð
Þá er komið að því að sigrast á bloggfælninni, það er svo erfitt að byrja á einhverju nýju.
Það hefur verið nóg að gera í háskólalífinu þessa viku, lestur, verkefni, maður verður að hafa sig allan
við svo að maður dragist ekki aftur úr (fjölskyldan ansi oft sett á pásu). Skiladagur fyrstu verkefna og önnur í sjónmáli.
Mig langar til að fjalla aðeins um vísindaferð vikunnar, þetta var fyrsta vísindaferð vetrarins hjá nemum í Bókasafns- og upplýsisngafræðum jafnframt mín fyrsta vísindaferð "ever".
Við fórum í heimsókn á Skjá 1 þann 23. sept tilgangurinn var að skoða skjalasafnið þeirra og kynnast starfsemi stöðvarinnar. Það var vel tekið á móti okkur í "screening" herberginu með góðum veitingum. Aðstoðar dagskrárstjórinn og skjalavörðurinn sögðu okkur frá starfseminni í megin dráttum. Eftir það fórum víð í vettvangsskoðum um bygginguna og enduðum í kjallaranum þar sem skjalasafnið er. Skjalasafnið samanstendur að beta spólum, þessum gömlu, ekki hafði maður hugmynd um að sýningarefni sjónvarpstöðva væri geymt í þessu formi. Allavega það voru runur af skápum fullum af spólum, sú sem heldur utan um safnið, Berglind, hannaði það líka, mjög smart hjá henni. Feriðnni lauk með því að við fengum að sjá gamanþátt sem verður sýndur bráðlega á Skjánum. Mjög fyndin teiknimynd fyrir fullorðna. Nú er maður bara á fullu að reyna að klára verkefni vikunnar, fyrir utan það að hjá mér standa yfir flutningar, svo það er verið að pakka, mála, þrífa endalaust að mér finnst. XO Ásdís

Subscribe to:
Posts (Atom)