Mig langar að fjalla aðeins um grein sem varðar höfundarrétt, sem ég las af vefnum is.wikibooks.org. Þessi grein er skrifuð af Salvöru Gissurardóttur og fjallar um höfundarrétt og internetið, hún fjallar aðallega um það hvernig kennarar geti nýtt sér efni af netinu til kennslu og þá hvernig þekkja má hvaða efni er verndað höfundarrétti og hvað er frjálst að nota án t.d. borgunar. Það eru gefin dæmi um hin ýmsu tákn sem tengjast höfundarrétti og útskýrir hún vel hvað hvert þeirra þýðir. Ég verð að segja að ég hef hingað til lítið leitt hugan að þessu efni og maður getur rétt ímynað sér að margir misnoti sér efni af netinu kanski oft án þess að gera sér grein fyrir því, sérstaklega þegar verið er að nota myndir og ljósmyndir. En eins og fram kemur í greininni er fullt til af efni sem ekki þarf að greiða fyrir og um að gera að nýta sér það. Að mínu mati mætti fjalla meira um þetta og upplýsa fólk betur um höfundarrétt og notkun á efni af internetinu.
Takk fyrir mig, Ásdís
Slóðin á greinina er eftirfarandi:
http://is.wikibooks.org/wiki/H%C3%B6fundarr%C3%A9ttur_og_Interneti%C3%B0
Thursday, November 25, 2010
Sunday, November 7, 2010
Þankar um skype
Þar sem ég sit hér og les greinar tendar námsefni komst dóttir mín í tölvuna. Ekki frásögu færandi nema hvað hún er að leika sér við vinkonu sína sem býr í Tékklandi á Skype. Mér finnst þetta vera atriði sem vert er að gefa gaum. Þannig er að við fjölskyldan bjuggum erlendis í mörg ár og krakkarnir mínir hafa verið að hafa samband við vini sína í gegnum Skype. Þessi yngsta, 8 ára, leikur sér núna við vinkonur á Skype. Þær taka til dót, núna er það pet shop, litlar dýrafígúrur, sem þær raða upp og leika svo fyrir framan tölvuskjáinn. Sem betur fer er þetta svo til frítt því þær eyða klukkutímum leikandi sér á þennan máta. Skype er frábært tæki til að vera í sambandi við vini og kunningja enn þegar það er komið út í þetta þá veit ég ekki alveg hvað ég á að halda? Er þetta hluti af framtíðinni hjá börnum að sitja heima fyrir framan skjáinn og leika! Ég er allavega ekki að letja hana í að stunda þetta því auðvitað heldur hún sambandi við vini og æfir sig í enskunni sem annars væri lítið notuð eins og er. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki verið eins dugleg að nota þessa tækni, en er að reyna að venjast því að blogga, gera heimasíðu og þess háttar, tekur smá tíma fyrir fólk sem ekki er vant að tjá sig mikið að finna sig á þessum vetvangi.
Kveðjur í bili
Ásdís
Kveðjur í bili
Ásdís
Subscribe to:
Posts (Atom)