Síðasti séns að skila inn færslu fyrir mánaðarlok. Það er allt á síðustu stundu hjá mér þessa dagana. Stend í flutningum um þessi mánaðarmót, fékk afhent nýtt húsnæði fyrir viku og þurfti að nota þessa viku til að mála og gera lítisháttar breytingar. Og er nú á fullu að pakka því á morgun er stóri dagurinn. Þetta rask hefur náttúruleg bitnað aðeins á háskólalífinu mín sem ég hef stundað með hálfum hug þessa viku. Er að reyna að detta ekki mikið afturúr í lestri. Ég verð samt að viðurkenna að ég var ansi óánægð með sjálfa mig og síðasta verkefni, þ.e.a.s. verkefnið um leitarvélarnar, enn reyni að gera betur næst. Annars var þetta mjög lærdómsríkt verkefni maður var að uppgötva alveg nýja hluti, allar þessar leitarvélar vá! Hingað til hef ég einungis notað google og það dugað ágætlega enn hér eftir verður maður gagnrýnni á leitarniðurstöður og leitar betur og á fleiri stöðum. Næsta verkefni gátlistar lítur ok út enn ég er aðeins farin að kvíða þessari heimasíðu ætti að fara að velta því aðeins fyrir mér.
Góða helgi
Ásdís
Thursday, September 30, 2010
Saturday, September 25, 2010
Vísindaferð
Þá er komið að því að sigrast á bloggfælninni, það er svo erfitt að byrja á einhverju nýju.
Það hefur verið nóg að gera í háskólalífinu þessa viku, lestur, verkefni, maður verður að hafa sig allan
við svo að maður dragist ekki aftur úr (fjölskyldan ansi oft sett á pásu). Skiladagur fyrstu verkefna og önnur í sjónmáli.
Mig langar til að fjalla aðeins um vísindaferð vikunnar, þetta var fyrsta vísindaferð vetrarins hjá nemum í Bókasafns- og upplýsisngafræðum jafnframt mín fyrsta vísindaferð "ever".
Við fórum í heimsókn á Skjá 1 þann 23. sept tilgangurinn var að skoða skjalasafnið þeirra og kynnast starfsemi stöðvarinnar. Það var vel tekið á móti okkur í "screening" herberginu með góðum veitingum. Aðstoðar dagskrárstjórinn og skjalavörðurinn sögðu okkur frá starfseminni í megin dráttum. Eftir það fórum víð í vettvangsskoðum um bygginguna og enduðum í kjallaranum þar sem skjalasafnið er. Skjalasafnið samanstendur að beta spólum, þessum gömlu, ekki hafði maður hugmynd um að sýningarefni sjónvarpstöðva væri geymt í þessu formi. Allavega það voru runur af skápum fullum af spólum, sú sem heldur utan um safnið, Berglind, hannaði það líka, mjög smart hjá henni. Feriðnni lauk með því að við fengum að sjá gamanþátt sem verður sýndur bráðlega á Skjánum. Mjög fyndin teiknimynd fyrir fullorðna. Nú er maður bara á fullu að reyna að klára verkefni vikunnar, fyrir utan það að hjá mér standa yfir flutningar, svo það er verið að pakka, mála, þrífa endalaust að mér finnst. XO Ásdís

Subscribe to:
Posts (Atom)