Thursday, September 30, 2010

Hitt og þetta

Síðasti séns að skila inn færslu fyrir mánaðarlok.  Það er allt á síðustu stundu hjá mér þessa dagana.  Stend í flutningum um þessi mánaðarmót, fékk afhent nýtt húsnæði fyrir viku og þurfti að nota þessa viku til að mála og gera lítisháttar breytingar.  Og er nú á fullu að pakka því á morgun er stóri dagurinn.  Þetta rask hefur náttúruleg bitnað aðeins á háskólalífinu mín sem ég hef stundað með hálfum hug þessa viku.  Er að reyna að detta ekki mikið afturúr í lestri.  Ég verð samt að viðurkenna að ég var ansi óánægð með sjálfa mig og síðasta verkefni, þ.e.a.s. verkefnið um leitarvélarnar, enn reyni að gera betur næst.  Annars var þetta mjög lærdómsríkt verkefni maður var að uppgötva alveg nýja hluti, allar þessar leitarvélar vá!  Hingað til hef ég einungis notað google og það dugað ágætlega enn hér eftir verður maður gagnrýnni á leitarniðurstöður og leitar betur og á fleiri stöðum.  Næsta verkefni gátlistar lítur ok út enn ég er aðeins farin að kvíða þessari heimasíðu ætti að fara að velta því aðeins fyrir mér.
Góða helgi
Ásdís

No comments:

Post a Comment