Sunday, October 17, 2010

Heimsókn á bókasafn

Föstudaginn 15. október var farið í aðra vísindaferð nema í Bókasafns- og upplýsingafræðum, í þetta skipti var farið í heimsókn á bókasafn Seltjarnarness.  Verð að viðurkenna að það var ekki auðvelt að drífa sig af stað á föstudegi í hellidembu kl. 17 frá Hafnarfirði út á Seltjarnarnes.  En mikið er ég fegin að hafa skellt mér með.  Það var mættur dágóður hópur nema út á Eiðstorg, verð að viðurkenna að það var að vísu ekki auðvelt að finna safnið í byggingunni, og var þetta það eina sem setja mætti út á þetta frábæra safn þ.e.a.s. aðgengi og merkingar.
Pálína Magnúsdóttir, forstöðukona safnsins, tók frábærlega á móti okkur og lóðsaði okkur um safnið og sagði okkur frá sögu þess og hvernig hún og aðrir starfsmenn tóku virkan þátt í hönnun þess þegar safnið flutti í þetta húsnæði fyrir nokkrum árum.  Mestallur bókakosturinn er í færnalegum hillum þannig að það er hægt að breyta ríminu á marga vegu eftir henntugleika.  Þegar við mættum um fimmleytið var verið að loka en safnið fullt af fólki svo það er líf og fjör þarna.  Það er frábær aðstaða til að slappa af og lesa bækur og blöð í stóru rúmgóðu rími og við hliðin á því er mjög gott barnarími með dínu og góðri aðstöðu fyrir börn.  Pálína talaði aðeins um það hvað menningarviðburðir eru að flytjast inná safnið, haldnir eru tónleikar og fyrirlestrar og ýmisleg fleiri menningartengd starfsemi á safninu og hún tók fram að þetta væri sennilega þróun bókasafnsins að sum menningartengd starfsemi bæjarfélagsins færðist hægt yfir til bókasafnsins.  Boðið var upp á veitingar í hliðarsal sem var fallega skreyttur með listaverkum eins stafsmanns sem hafði notað gamlar bækur og búið til ýmisleg skemmtileg listaverk.  Ég var allavega heilluð af þessu safni, það er hátt til lofts og góð opin aðstaða til að vafra um og kíkja í hillurnar, þessar færanlegu bókahillur eru líka notaðar til að mynda minni rími sem í eru stólar og borð til að tilla sér í og glugga í bók. Sem sagt glæsilegt safn sem ég á vonandi eftir að heimsækja fljótt aftur.  Kveðjur Ásdís

No comments:

Post a Comment