Sunday, October 31, 2010

Umfjöllun um grein

Eitt af verkefnunum okkar er að fjalla um grein tengda náminu, og ætla ég að gera það hér.  Greinin sem varð fyrir valinu er af leslistanum og fjallar um notkunarpróf á vefsíðum bókasafna.  Grunnlínan í greininni er að bókasöfn eigi að vera fyrirmynd í því að notkunaprófa vefsíður sínar með þá þekkingu sem starfsfólið býr yfir og halda úti notendavænum vefsíðum.  Markmið með prófun er að ákvarða nokkur atriði eins og virkni; nær notandinn í þær upplýsingar sem hann sækist eftir, skilvirkni; hversu mikið þarf hann að hafa fyrir því og ánægja; er notandinn ánægður með upplýsingarna og er jákvætt viðhorf gagnvart reynslunni.  Aðferðir prófunar er skipt í tvær megin aðferðir þ.e.a.s. það að hönnuðir vefsíða meti notkun og að notendur skili sínu áliti um notkun á vefsíðum.  Það eru ýmis próf á markaðum núna sem auðveld notkunarkannanir og hefur þeim fjölgað á seinni árum.  Þar sem flestöll bókasöfn halda úti vefsíðum ættu reglulegar kannanir á notkun að vera gerðar að mati greinahöfundar, og endurbætur á vefsíðum gerðar í sambandi við það til að skila ánægðum notendum vefs bókasafnsins. Hann telur að próf á notkun ætti að hefja strax við upphaf hönnunar á vefsíðu og gera reglulega þannig að til verði vefsíður sem eru notendavænar fyrir alla.
Þessi grein staðfesti það hversu hröð þróun er á allri netnotkun, að bókasöfn verði að fylgjast vel með notendahóp sínum og kröfum sem þeir gera, upplýsingar um það fást með gerð notkunarprófa sem þarf að gera reglulega.  Mér fannst þessi grein ágæt, hún fékk mig aðeins til að hugsa um þessi atriði að það þarf að hafa vakandi augu fyrir kröfum notendanna að þeir koma bara ekki aftur á vefsíðuna ef hún er ekki notendavæn.

Genuis, S. K. (2004). Web site usability testing: A critical tool for libraries. Feliciter, 50(4), 161-164. Sótt 30. október 2010, í EbscoHost gagnagrunninn

No comments:

Post a Comment