Sunday, November 7, 2010

Þankar um skype

Þar sem ég sit hér og les greinar tendar námsefni komst dóttir mín í tölvuna.  Ekki frásögu færandi nema hvað hún er að leika sér við vinkonu sína sem býr í Tékklandi á Skype.  Mér finnst þetta vera atriði sem vert er að gefa gaum.  Þannig er að við fjölskyldan bjuggum erlendis í mörg ár og krakkarnir mínir hafa verið að hafa samband við vini sína í gegnum Skype.  Þessi yngsta, 8 ára, leikur sér núna við vinkonur á Skype.  Þær taka til dót, núna er það pet shop, litlar dýrafígúrur, sem þær raða upp og leika svo fyrir framan tölvuskjáinn.  Sem betur fer er þetta svo til frítt því þær eyða klukkutímum leikandi sér á þennan máta.  Skype er frábært tæki til  að vera í sambandi við vini og kunningja enn þegar það er komið út í þetta þá veit ég ekki alveg hvað ég á að halda?  Er þetta hluti af framtíðinni hjá börnum að sitja heima fyrir framan skjáinn og leika!  Ég er allavega ekki að letja hana í að stunda þetta því auðvitað heldur hún sambandi við vini og æfir sig í enskunni sem annars væri lítið notuð eins og er.  Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki verið eins dugleg að nota þessa tækni, en er að reyna að venjast því að blogga, gera heimasíðu og þess háttar, tekur smá tíma fyrir fólk sem ekki er vant að tjá sig mikið að finna sig á þessum vetvangi.
Kveðjur í bili
Ásdís 

1 comment:

  1. Þetta er gaman að heyra. Ég veit um konu sem les fyrir barnabarnið sitt á hverju kvöldi í gegnum skype en þetta er skemmtileg hugmynd. Þarf að miðla þessu.
    kv
    Rósa Harðar

    ReplyDelete