Þá er komið að því að sigrast á bloggfælninni, það er svo erfitt að byrja á einhverju nýju.
Það hefur verið nóg að gera í háskólalífinu þessa viku, lestur, verkefni, maður verður að hafa sig allan
við svo að maður dragist ekki aftur úr (fjölskyldan ansi oft sett á pásu). Skiladagur fyrstu verkefna og önnur í sjónmáli.
Mig langar til að fjalla aðeins um vísindaferð vikunnar, þetta var fyrsta vísindaferð vetrarins hjá nemum í Bókasafns- og upplýsisngafræðum jafnframt mín fyrsta vísindaferð "ever".
Við fórum í heimsókn á Skjá 1 þann 23. sept tilgangurinn var að skoða skjalasafnið þeirra og kynnast starfsemi stöðvarinnar. Það var vel tekið á móti okkur í "screening" herberginu með góðum veitingum. Aðstoðar dagskrárstjórinn og skjalavörðurinn sögðu okkur frá starfseminni í megin dráttum. Eftir það fórum víð í vettvangsskoðum um bygginguna og enduðum í kjallaranum þar sem skjalasafnið er. Skjalasafnið samanstendur að beta spólum, þessum gömlu, ekki hafði maður hugmynd um að sýningarefni sjónvarpstöðva væri geymt í þessu formi. Allavega það voru runur af skápum fullum af spólum, sú sem heldur utan um safnið, Berglind, hannaði það líka, mjög smart hjá henni. Feriðnni lauk með því að við fengum að sjá gamanþátt sem verður sýndur bráðlega á Skjánum. Mjög fyndin teiknimynd fyrir fullorðna. Nú er maður bara á fullu að reyna að klára verkefni vikunnar, fyrir utan það að hjá mér standa yfir flutningar, svo það er verið að pakka, mála, þrífa endalaust að mér finnst. XO Ásdís
Þú ert greinilega með aðeins fleiri klukkustundir í sólarhringnum en ég. ;-) Eða betur skipulögð. :-)
ReplyDeleteKveðja Linda